Feðgar dæmdir til refsingar 21. desember 2004 00:01
Tuttugu og tveggja ára maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudag, dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir innflutning á fimmtán kílóum af hassi í félagi við föður sinn og tvo jafnaldra sína. Efnin flutti maðurinn í þremur skipaferðum frá Danmörku. Jafnaldrar mannsins og félagar voru hvor um sig dæmdir í átta mánaða fangelsi fyrir sölu á hluta efnanna. Faðir hans fékk fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tekið á móti einni sendingunni sem stíluð var á hans nafn. Hassið flutti maðurinn til landsins með því að fela það í dekkjum á felgum. Fyrst tvö kíló af hassi, síðan fimm kíló og síðast átta kíló. Höfuðpaurinn og jafnaldrar hans játuðu brot sín að mestum hluta. Faðir höfuðpaursins neitaði hins vegar að hafa haft nokkra vitneskju um innflutning fíkniefnanna. Þykir dómnum ótrúlega að hann hafi ekki vitað um innflutninginn þar sem hann bjó á sama stað og mennirnir þrír. Honum hljóti að hafa verið ljóst að flytja átti inn fíkniefni en ekki eingöngu hjólbarða. Höfuðpaurnum var gert að sæta upptöku á 2,8 milljónum króna vegna fíkniefnasölu. Eins var einn samverkamanna hans gert að sæta upptöku á 1,1 milljón króna.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Hópur manna réðst á Íslending í Liverpool Innlent Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Innlent Prestur á Nesinu segir nei takk við greiðslum Innlent Ekki verði hróflað við kvótakerfinu Innlent Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Innlent Hafdís og Sandra vilja stjórna Litla-Hrauni Innlent Fékk áfall þegar ranglega var fullyrt að stunguárásin hafi gerst á heimili hennar Innlent „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Innlent Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Innlent Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Erlent Fleiri fréttir „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Hættuástand í heilbrigðisþjónustu og óróapúls Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Netsamband komið aftur á í Árbæ Inflúensugreiningar tvöfölduðust milli vikna Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Bílvelta á Suðurlandi Prestur á Nesinu segir nei takk við greiðslum Þungt haldinn á gjörgæslu Ekki verði hróflað við kvótakerfinu „Við förum alltaf í einhvern átakagír“ Ólafsfjarðarmálið fer fyrir Hæstarétt Fleiri segjast andvígir aðild að ESB en hlynntir Hópur manna réðst á Íslending í Liverpool Aukið flóð við Hvítá Lengsti óróapúlsinn til þessa Klakastífla í Hvítá og ráðherrar í fannfergi á Þingvöllum Bjóða fólki í kuldaþjálfun Hafdís og Sandra vilja stjórna Litla-Hrauni Vinnufundur ráðherra á Þingvöllum hafinn Fékk áfall þegar ranglega var fullyrt að stunguárásin hafi gerst á heimili hennar Viðreisn og Framsókn dala en sósíalistar yfir kjörfylgi Ungmenni skar sig á múrstein sem var kastað inn um glugga Vinna að því að koma í veg fyrir frekari aðgerðir hjá kennurum „Við værum klaufaleg ef það væri ekki“ Telur ólíðandi að ekki hafi verið hægt að úrskurða afa sinn látinn um jólin „Ekki gera lítið úr þriðja formanninum“ Flugeldaruslið notað til að framleiða orku í Svíþjóð Helstu breytingarnar á buddunni: Vextir lækka áfram og eldsneyti hækkar um fimm prósent Sjá meira
Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Innlent
Sparnaðartillögum snjóar inn: Leggja niður RÚV, loka sendiráðum og hætta að styrkja flokkana Innlent