Neitar að viðurkenna ósigur 27. desember 2004 00:01
Svik og prettir voru víðsfjarri þegar önnur umferð forsetakosninganna í Úkraínu var endurtekin í gær. Viktor Júsjenko er öruggur sigurvegari í kosningunum en mótherji hans, Janúkovítsj, neitar að viðurkenna ósigur. Mikil fagnaðarlæti brutust út á sjálfstæðirtorginu í Kænugarði þegar ljóst varð að Júsjenkó hefði borið sigur úr býtum. Hann hlaut um fimmtíu og tvö prósent atkvæða, Janúkóvitsj forsætisráðherra fjörutíu og sex prósent. Síðast var talsvert um kosningasvik en ekki í þessari umferð, að sögn kosningaeftirlitsmanna sem fylgdust grannt með. Þó að sigurinn sé nokkuð afgerandi er ljóst að þjóðin er klofin og að í austurhluta landsins, þar sem íbúar eru margir hverjir af rússnesku bergi brotnir og fremur hliðhollir Viktor Janúkovítsj, eru menn fullir efasemda. Júsjenko virðist þó vera sér þess meðvitaður að á brattann verður að sækja og hefur m.a. lýst því yfir að hann vilji áfram rækta tengslin við stjórnvöld í Kreml. Megináhersla hans á þó að verða á efnahagsmál og umbætur, auk þess sem Júsjenkjó vill bindast Evrópusambandinu og Vesturlöndum almennt nánari böndum.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Sjá meira