Sport

12 stiga sigur hjá stúlkunum

Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik vann í kvöld tólf stiga sigur á úrvaldsliði frá London í lokaleik í æfingaferð stelpnanna til Englands. Íslenska liðið var 32-29 yfir í hálfleik og sigraði að lokum með 76 stigum gegn 64. Stigahæst í kvöld var Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir með 14 stig, þar af fjórar þriggja stiga körfur. Þær Alda Leif Jónsdóttir og Signý Hermannsdóttir gerðu níu stig hvor og Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir gerðu átta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×