Stórfelld árásarhrina undirbúin 24. janúar 2005 00:01
Lykilmaðurinn í flestum sprengjutilræðum sem gerð hafa verið í Írak síðustu vikur er kominn á bak við lás og slá að sögn þarlendra yfirvalda. Svo virðist sem handtakan hafi ekki dregið vígtennurnar úr andspyrnuhópum sem talið er að séu að skipuleggja stórfellda árásarhrinu síðustu dagana fyrir þingkosningarnar. Einn nánasti samstarfsmaður Abu Musab al-Zarqawis, sem er sakaður um að hafa skipulagt um þrjátíu sprengjutilræði, m.a. árásina á höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna í Bagdad fyrir tæpum tveimur árum, var hnepptur í varðhald fyrir rúmri viku en ekki var skýrt frá handtökunni fyrr en í dag. Vitað er að samtök Al-Zarqawis hafa náin tengsl við Al-Kaída samtökin og handtaka þessa lykilmanns þykir því þó nokkur fengur. Forsvarsmenn Bandaríkjahers segja að merkjanleg fækkun hafi orðið í árásum andspyrnuhópa í Írak síðustu dagana. Þessi fækkun er þó ekki rakin til handtökunnar heldur telja fréttaskýrendur sig hafa heimildir fyrir því að andspyrnuhópar landsins séu aðeins að undirbúa stórfellda árásarhrinu um næstu helgi þegar líður að kosningum. Þrátt fyrir að yfirvöld í Írak og Bandaríkjunum reyni sitt besta til að sannfæra írakskan almenning um að öryggi þeirra á kjörstöðum verði tryggt eru mjög margir sem treysta því illa, enda er óttast er að kosningaþátttakan verði afar dræm.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira