Innlent

Sigldi trillu drukkinn

Maður á fimmtugsaldri var handtekinn fyrir að sigla trillu undir áhrifum áfengis við Árskógsströnd á þriðjudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Dalvík barst henni tilkynning um klukkan 17.30 um einkennilega siglingu trillu úti fyrir ströndinni. Maðurinn í bátnum sigldi trillunni að lokum í land, stórslysalaust og var handtekinn í kjölfarið grunaður um ölvun. Björgunarsveitin við Árskógsströnd kom trillunni aftur á flot. Manninum var sleppt að lokinni skýrslutöku en málið er í rannsókn. Hann mun hafa komist í kast við lögin áður fyrir svipað athæfi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×