Varar Sýrlendinga og Írana við 3. febrúar 2005 00:01
Bush Bandaríkjaforseti notaði stefnuræðu sína í gær meðal annars til að vara bæði Sýrlendinga og Írana við því að eiga samstarf við hryðjuverkahópa. Ljóst þykir að Bandaríkjastjórn mun á næstunni beina sjónum sínum að þessum tveimur löndum. Bush setti klárlega tóninn fyrir utanríkisstefnu sína í stefnuræðunni í gær og hjó í sama knérunn og nýskipaður utanríkisráðherra, Condoleeza Rice, þegar hún nefndi nýverið sex einræðisríki heimsins sem Bandaríkin myndu fylgjast með. Bush þrengdi hópinn og nefndi sérstaklega Sýrland og Íran. Hann hvatti nánast til uppreisnar í Íran því hann hvatti Írana til að standa gegn ríkisstjórn sinni og fullyrti að ef Íranir vildu opna dyr sínar fyrir frelsi og lýðræði þá væri stuðningur Bandaríkjamanna vís. Þá sagðist Bush mjög ánægður með þróun mála fyrir botni Miðjarðarhafs og hét því að Palestínumenn fengju ríflega styrki frá Bandaríkjamönnum á kjörtímabilinu. Stefnuræða Bush snerist hins vegar að mestu um innanríkismál og þá einkum velferðarmál. Hann eyddi drjúgum tíma í að ræða um fyrirhugaða skerðingu á lífeyrisréttindum Bandaríkjamanna því allt stefndi í að lífeyrissjóðir landsins yrðu gjaldþrota, héldist núverandi kerfi óbreytt. Bush lagði til að stjórnvöld kæmu í staðinn til móts við fólk með skattalækknum og svo sæi ungt fólk sjálft um það að fjárfesta í verðbréfum og hlutabréfum til að búa sér í haginn fyrir efri ár.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira