Mikil mildi að ekki varð stórslys 5. febrúar 2005 00:01
Mikil mildi þykir að ekki hlaust af stórslys þegar ökumaður, sem ekið hafði á tæplega 200 kílómetra hraða eftir Miklubraut, ók aftan á kyrrstæða bifreið sem í voru fjórir farþegar. Lögreglumenn veittu sportbifreið af Mitsubishi-gerð athygli við Höfðabakka í Reykjavík á þriðja tímanum í nótt. Bifreiðinni var ekið eftir Ártúnsbrekku í vesturátt á ofsahraða og er talið að hún hafi verið á yfir 190 kílómetra hraða um tíma. Lögreglumenn veittu ökumanni eftirför og komu fimm lögreglubílar að málinu. Ökuníðingurinn ók áfram á ofsahraða vestur eftir Miklubraut og dró í sundur með honum og lögreglu. Við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar ók hann aftan á kyrrstæða Huyndai-bifreið, en fernt var í þeim bíl en ökufanturinn var einn í sínum bíl. Áreksturinn var mjög harður og eru báðir bílarnir taldir gjörónýtir. Öll fimm voru flutt á slysadeild Landspítalans í Fossvogi, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni slasaðist ekkert þeirra alvarlega þrátt fyrir að áreksturinn hafi verið mjög harður. Ökufanturinn var handtekinn og yfirheyrður í dag en sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira