Vopnahlé fyrir botni Miðjarðarhafs 7. febrúar 2005 00:01
Skjótt skipast veður í lofti fyrir botni Miðjarðarhafs. Leiðtogar Ísraels og Palestínu sem hittast á sögulegum leiðtogafundi á morgun hafa ákveðið að tilkynna um vopnahlé á milli stríðandi fylkinga. Þá hafa þeir líka þekkst heimboð Bush Bandaríkjaforseta um annan leiðtogafund í Washington í vor. Condoleezza Rice, nýskipaður utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur borið með sér ferskan anda og nýglæddar vonir í heimsókn sinni til Ísraels og Palestínu. Í dag sagði hún að enginn skyldi efast um stuðning Bandaríkjamanna í ferlinu á þessari stundu því enginn vafi léki á stuðningi forsetans eða hennar. „Bandaríkin þurfa ekki að taka þátt í þessu öllu en þau þurfa að vera til staðar þegar á þarf að halda,“ sagði Rice. Miklar vonir eru bundnar við fund Abbas og Sharons á morgun í Egyptalandi og þeir hafa í framhaldi samþykkt að hitta Bush í Washington. Að afloknu góðu dagsverki fyrir botni Miðjarðarhafs hélt Rice aftur af stað og nú er förinni heitið beint í gin ljónsins, til Parísar. Vandlega verður fylgst með öllu því sem Rice hefur að segja í París enda er litið á þetta sem úrslitatilraun til að lappa upp á samskipti stjórnvalda í Frakklandi og Bandaríkjunum. Michele Alliot-Marie, varnarmálaráðherra Frakklands, segir augljóst að á einn eða annan hátt sé hér um sáttaumleitarnir að ræða gagnvart Evrópubúm og sér í lagi Frökkum. „Og við viljum einnig rétta fram sáttahönd,“ segir Alliot-Marie. Dominique Moisi fréttaskýrandi segir eina aðalástæðuna fyrir því að Frakkar vilji eðlilegri samskipti við Bandaríkin sé Evrópa. Ef Frakkar vilji leika stórt hlutverk í umræðum innan Evrópu í framtíðinni geti þeir ekki staðið einir og barist við Washington um leið. „Svo vegna Brussels, vegna Evrópu, þarfnast Frakkar eðlilegra sambands við Bandaríkin,“ segir Moisi.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira