Fékk heilahristing í áflogum 13. febrúar 2005 00:01
Tilkynnt var um líkamsárás til lögreglunnar á Ísafirði snemma í morgun. Áflog höfðu brotist út milli manna sem slógust í íbúðargötu í bænum. Þau enduðu með því að einn var fluttur á sjúkrahús og talið var að hann hefði fengið heilahristing. Engin kæra hefur enn verið lögð fram og reyndar er óljóst hver réðist á hvern, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Um klukkan fimm í nótt var kona slegin í höfuðið með flösku við skemmtistaðinn Nellys í Bankastræti í Reykjavík. Hún var flutt til aðhlynningar á sjúkrahúsi en árásarmaðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu. Það hefur verið órólegt í miðborginni um helgina samkvæmt lögreglunni. Síðastliðna nótt voru fjórir teknir ölvaðir við akstur, þar af einn sem sá ástæðu til að aka gröfu eftir Hverfisgötunni. Þá barst lögreglunni tilkynning í nótt um að maður íklæddur lögreglubúningi stæði á gatnamótum Vitastígs og Laugavegs og reyndi að stofna til slagsmála. Í fyrstu var talið að um væri að ræða lögreglumann í vanda en annað kom á daginn. Maðurinn hljóp í burtu þegar lögregla kom að. Hann fannst stuttu síðar á skemmtistað við Hverfisgötu. Sjálfur sagðist maðurinn hafa fengið lögreglubúninginn lánaðan hjá búningaleigu Þjóðleikhússins: lögreglujakka, buxur og skyrtu. Á endanum fékk hann þó að reyna meira en að klæðast fatnaði lögreglunnar. Hann fékk allan pakkann - fékk að sitja bæði í bifreið lögreglu og fangageymslu.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira