Erlent

Bush mætir andstæðingum sínum

Bush Bandaríkjaforseti mun mæta sínum hörðustu andstæðingum, hverjum á fætur öðrum, í fimm daga Evrópureisu sinni sem hófst í dag og situr meðal annars kvöldverð með Jacques Chirac Frakklandsforseta í kvöld. Bush er talin ætla að nota tækifærið til að bæta samskiptin yfir Atlantsála sem súrnuðu verulega í kjölfar Íraksstríðsins. Þó er ljóst að ekki verður saminn friður á öllum vígstöðvum því skoðanir eru skiptar í mörgum málum, s.s. afstöðunni til loftslagsmála og alþjóðlega glæpadómstólsins, svo fátt eitt sé nefnt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×