Viðskipti innlent

Eimskip og Faroe Ship sameinast

Eimskip og Faroe Ship í Danmörku hafa ákveðið að sameina félögin Eimskip Denmark A/S og Faroe Ship A/S undir nafninu Eimskip - Faroe Ship Denmark A/S. Í tilkynningu segir að með sameiningunni verði til félag sem geti veitt enn öflugri þjónustu en áður gagnvart viðskiptavinum sínum í Færeyjum, Danmörku og á Íslandi. Siglingakerfið helst óbreytt. Þessar breytingar eru liður í þeirri þróun og stefnumótum hjá Eimskip á Norðurlöndunum sem hefur það að leiðarljósi að auka hagkvæmni í rekstri ásamt því að veita viðskiptavinum skilvirkari og betri þjónustu, að því er segir í tilkynningunni. Framkvæmdastjóri Eimskip – Faroe Ship Denmark A/S er Hjörtur Hjartar. Árni Joensen er framkvæmdastjóri Faroe Ship í Færeyjum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×