Powell: Of fáir hermenn í Írak 26. febrúar 2005 00:01 MYND/Reuters
Fleiri hermenn hefði þurft til að taka á ástandinu að loknum stríðinu í Írak, segir Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Hann telur að Bandaríkjastjórn verði að leggja sig fram við að bæta samskiptin við Evrópuríki. Þegar Powell lét af embætti utanríkisráðherra Bandaríkjanna í síðasta mánuði var talið víst að það væri vegna óánægju með stefnu stjórnarinnar en enginn átti von á því að Powell myndi greina frá óánægju sinni á næstunni. En í dag birti breska dagblaðið Daily Telegraph viðtal við Powell þar sem hann gagnrýnir fyrrverandi samstarfsmenn sína og stefnu Bush forseta, einkum hvernig málum í Írak var hagað. Powell segir til dæmis að fleiri hermenn hefði þurft í Írak í kjölfar stríðsins til að takast á við ringulreiðina og skálmöldina sem tók við. Stríðið sjálft hafi verið skipulagt af snilld en því sem fylgdi í kjölfarið hafi verið klúðrað. Þó að Powell skelli ekki skuldinni á Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra fer ekki á milli mála hver það er sem sem hann telur bera ábyrgðina á því hvernig fór og hver ein meginástæða afsagnar Powells er. Powell segist hafa varað yfirmenn sína - þ.e. Bush forseta - við því að erfiðleikarnir myndu fyrst hefjast að loknu stríði því að Írak væri eins og kristalkúla sem splundraðist og það væri vandamál Bandaríkjanna að hreinsa til. Hann kveðst hafa varað Bush forseta við þessu og af þeim sökum hafi Bush heimilað honum að leita enn á ný til Sameinuðu þjóðanna og fá þar samþykkta lokaályktun sem Frakkar og fleiri komu í veg fyrir. Samskipti Bandaríkjanna og Evrópu eru einnig Powell hugleikin og hann segir að Bandaríkin verði að leggja sig fram við að bæta samskipti við Evrópuríki sem og Evrópubúa.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira