Rússar bætast í hóp gagnrýnenda 3. mars 2005 00:01
Enn eykst þrýstingur á sýrlensk stjórnvöld að hverfa á brott með hersveitir sínar frá Líbanon. Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur nú bæst í hóp gagnrýnenda en hingað til hafa Rússar verið álitnir einir sterkustu bandamenn Sýrlendinga. Utanríkisráðherrar Arababandalagsins funda nú í Kaíró í Egyptalandi. Áhersla er lögð á að reyna að lægja öldurnar eftir morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Formaður bandalagsins, Amr Moussa, hvatti Sýrlendinga til að framfylgja loksins Taif-samkomulaginu sem gert var þegar borgarstyrjöldinni í Líbanon lauk árið 1989. Þá áttu Sýrlendingar að flytja 14.000 manna sveitir sínar nær eigin landamærum og hverfa á endanum alveg frá Líbanon. Það hefur ekki gengið eftir. Hvorki utanríkisráðherra Sýrlands né Líbanons tóku þátt í ráðstefnunni. Sýrlendingar hafa sagst ætla að flytja sveitir sínar til en af því hefur enn ekki orðið. Það sem þykir þó geta vegið jafnvel enn þyngra en þrýstingur nágrannalandanna er yfirlýsing Sergeis Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, um að sýrlenskar hersveitir eigi að koma sér heim, þó að nauðsynlegt sé að gæta þess að jafnvægi haldist í Líbanon. Rússar lofuðu að afskrifa rúmlega 600 af 830 milljarða króna skuldum Sýrlands við Rússa þegar Sýrlandsforseti fór í opinbera heimsókn til Rússlands í janúar. Sýrlensk stjórnvöld eiga því orðið í fá hús að venda í leit að stuðningi.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira