Fer fram á 16 ára fangelsi

Saksóknari sem flutti mál gegn Hákoni Eydal í dag krafðist þess að hann yrði dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að hafa banað Sri Rahmawati, fyrrverandi sambýliskonu sinni og barnsmóður. Hákon hefur játað á sig morðið en hann segir Sri og fjölskyldu hennar hafa hótað sér og kúgað sig mánuðum saman áður en hann sturlaðist úr bræði og banaði henni. Geðlæknir telur Hákon sakhæfan.