Sérstakar Spánar-hátíðir 10. mars 2005 00:01
La Feria de Avril í Sevilla er í lok apríl og stendur yfir í viku. Hátíðin var fyrst haldin svo að bændur gætu keypt og selt búfé árið 1847 en hefur síðan þróast í ekta spænska hátíð með flamenco-sýningum og nautaati. Risastórt tjald er sett upp í borginni og skreytt með marglitum ljóskerum. Fólk dansar og syngur alla nóttina og notar fyrripart dags til að hvíla sig frá hátíðarhöldunum.Semana Santa, eða heilaga vika, er haldin hátíðleg um allan Spán í apríl. Héraðið sem er þó þekktast fyrir þessi hátíðarhöld er Andalúsía. Á þessari hátíð koma saman ýmsar trúarreglur og halda á kertum og borðum um götur og stræti. Þetta er afskaplega trúarleg og dularfull hátíð en trúlausir geta samt haft gaman að því að kynnast nýjum menningarheimi.15. maí er San Isidro-hátíðin haldin í höfuðborg Spánar, Madríd. Þar er dýrlingurinn San Isidro hylltur en hann er dýrlingur bænda. Á þessum degi fara íbúar Madrídar í pílagrímsferð til San Isidro-engilsins og drekka heilagt vatn úr brunni dýrlingsins. Margir eru íklæddir þjóðbúningi Spánverja og taka með sér mat og drykk á hátíðina. Þessi hátíð stendur í marga daga og er ein af þeim flottari á Spáni þar sem ýmislegt er hægt að gera sér til afþreyingar eins og að fara á dansleik og syngja þjóðlög. Það dregur ekki mikið til tíðinda í smábænum Lanjarón en á Jónsmessu, í lok júní, er þar heljarstórt vatnsstríð. Þá kemur fólk alls staðar að, sérstaklega frá öðrum bæjum á Spáni, og nýtur þess að kasta og spreyja vatni á bláókunnugt fólk. Innfæddir halda sig yfirleitt innandyra, fylla allar fötur hússins af vatni og njóta þess að hella því í fötur fyrir gestina sem kyrja ýmsar vísur um meira vatn. Stríðið byrjar á tólf á miðnætti og stendur yfir í einn til tvo tíma, allt eftir því hvað gestir og gangandi þola mikið af ískalda vatninu. Allt er notað til að bleyta næsta mann; vatnsbyssur, brunaslöngur, fötur og vatnsblöðrur.San Fermín-hátíðin í Pamplona er eflaust ein vinsælasta hátíðin á Spáni og allur heimurinn þekkir hana. Hátíðin byrjar 6. júlí og stendur yfir í viku. Á þessari hátíð er andstæðum blandað saman, gömlu og nýju, skipulögðu og óskipulögðu. Þekktasti atburðurinn á hátíðinni er þegar nautunum er sleppt út á göturnar og hver sem vettlingi veldur getur spreytt sig í að hlaupa undan óðum nautunum. Auk nautahlaupsins eru dansleikir, bænastundir og almennt stuð. Stærsti árlegi matarslagur í heiminum er einnig haldinn á Spáni. Það er La Tomatina í smábænum Bunol nálægt Valencia. Matarslagurinn er hluti af hátíð sem byrjar síðasta miðvikudaginn í ágúst og stendur í viku. Tugir þúsunda mæta til Bunol á hverju ári til að kasta um 150 þúsundum tómötum hvor í annan. Eina reglan er að sá sem kastar tómatinum verður að stíga á hann fyrst til að mauka hann svo að enginn meiði sig. Best er að mæta í druslufötunum en eftir slaginn er hægt að spúla sig vel og lengi í bænum ásamt öðrum þátttakendum.Nautahlaupið í Pamplona hefur vakið óhug meðal margra.Tómatstríðið er algjör bilun - en ótrúlega skemmtilegt.
Ferðalög Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Kvaddi dramað og flutti fyrir ástina Lífið Fleiri fréttir Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira