Hörð átök á breska þinginu 11. mars 2005 00:01
Harka einkennir átök Tonys Blairs við stjórnarandstöðuna á breska þinginu en þar er hryðjuverkalagafrumvarp stjórnvalda til umræðu. Enginn vill gefa eftir og þræturnar gætu því dregist á langinn. Umræða um frumvarpið hefur tröllriðið breskum fjölmiðlum undanfarna daga. Verði það samþykkt fá bresk stjórnvöld meðal annars heimild til að hneppa grunaða í stofufangelsi, setja á útgöngu- og ferðabönn og fleira af þeim meiði. Nánast um leið og stjórnin lagði frumvarpið fram gaf hún eftir og lagaði það lítillega að kröfum stjórnarandstöðunnar. Því næst var spyrnt í og neitað að gefa meira eftir og þá töldu margir stjórnmálaskýrendur að lögin væru andvana fædd. Baráttan og orrahríðin á þingi stendur enn. Blair segir þetta spurningu um dómgreind fyrir Michael Howard, leiðtoga Íhaldsfloksins, og flokkinn allan. „Þeir verða einfaldlega að skilja að það er ábyrgðarlaust að halda áfram að útvatna og veikja þessi lög. Það er rangt og þeir ættu að hætta því,“ sagði Blair og bætti við að Neðri málstofa þingsins hefði látið álit sitt greinilega í ljós. „Við þurfum á þessum lögum að halda til að vernda öryggi fólks í landinu,“ sagði forsætisráðherrann. Forsyth lávarður, fyrrverandi ráðherra Skotlands, líkti aðgerðum Blair við hegðun barns.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira