Hryðjuverkalögin samþykkt 13. október 2005 18:54
Ströng og umdeild hryðjuverkalög voru samþykkt á breska þinginu í gær eftir langar og sögulegar deilur þingmanna og stjórnar. Tony Blair gaf eftir í gær og bauð þingmönnum málamiðlun í deilunni um hryðjuverkalagafrumvarp stjórnvalda. Eftir þrjátíu klukkustunda maraþonfundi máttu lávarðarnir í Lávarðadeildinni sem og óbreyttir þingmenn loksins fara heim. Þingmenn hafa ekki setið jafnlengi við í hartnær öld. Allir virtust í gær vera á því að þeir hefðu haft betur í slagnum. Blair fékk lögin sín samþykkt en stjórnarandstaðan fékk einnig sínu framgengt því lögin verða tekin til endurskoðunar að ári. Málamiðlun Blairs fólst í því að stefna að endurskoðun eftir rétt ár, en lögin falla þó ekki sjálfkrafa úr gildi eftir þann tíma eins og stjórnarandstaðan krafðist. Þingmenn hafa nú tíma og ráð til að endurskoða lögin og jafnvel leggja fram frumvarp til nýrra laga sem kæmi í stað núverandi laga að ári. Um leið og lögin voru samþykkt tóku stjórnvöld til við að notfæra sér ákvæði þeirra, einkum til að tryggja að engin hætta stafaði af tíu fyrrverandi föngum sem haldið hafði verið án dóms og laga vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Þeim var sleppt í gær en dómari setti ströng skilyrði um eftirlit sem byggja á eldri hryðjuverkalögum sem runnu út í gær. Innanríkisráðherra Bretlands, Charles Clarke, má samkvæmt lögunum leggja kvaðir á grunaða en dómstóll verður að staðfesta aðgerðirnar innan viku.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Marxisti kjörinn forseti Srí Lanka Segir að Hezbollah muni skilja skilaboðin Fimmtíu og einn látinn eftir sprengingu í námu Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Jörðin fær tímabundið annað tungl Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Skiptast á eldflaugum í massavís Konur og börn meðal látinna þegar Hezbollah-leiðtoga var ráðinn bani Ríkisstjórn mynduð í Frakklandi Skorar á Trump í aðrar kappræður Diddy á sjálfsvígsvakt Senda svifsprengjur fyrir F-16 Repúblikanar áhyggjufullir vegna „svarta nasistans“ Óþekkt tónverk eftir Mozart fannst Fjölmiðlafólki vísað úr salnum við myndbirtingu: „Þetta er ósæmilegt og átakanlegt myndefni“ Önnur vopnageymsla í ljósum logum í Rússlandi Stjörnublaðamaður í straff vegna sambands við Kennedy Vörpuðu líkum fram af húsþaki á Vesturbakkanum Felldu marga leiðtoga Hezbollah í einni árás Samþykkja frumvarp um aukna gæslu fyrir Trump og Harris Útskrifuð af sjúkrahúsi með hálskraga Felldu einn af leiðtogum Hezbollah Sýndu fyrstu myndböndin í dómsal Hnífjafnt á landsvísu en Harris með forskot í Pennsylvaníu Fógeti skaut dómara Títan bilaði og lenti í árekstri nokkrum dögum fyrir hinstu förina Íbúar Springfield klofnir í afstöðu sinni til heimsóknar Trump Ísraelar gera umfangsmiklar loftárásir á skotmörk í Líbanon Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Sjá meira