Erlent

Afsögn Perssons ekki á dagskrá

Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, vísar því á bug að hann hyggist segja af sér embætti. Vinsældir Persons hafa dalað mjög samkvæmt skoðanakönnunum og í dagblaðinu Expressen í dag eru settar fram getgátur um afsögn hans á flokksþingi sósíaldemókrata síðar á þessu ári. Persson hefur verið forsætisráðherra Svíþjóðar í níu ár og sagðist alls ekki hafa í hyggju að hætta heldur væri það meginverkefni hans að berjast við atvinnuleysið í landinu. Auk þess ætti ekki að treysta skoðanakönnunum um of.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×