Fíkniefnahundur vanræktur 2. apríl 2005 00:01
Fíkniefnahundur var tekinn af lögreglumanni í Borgarnesi vegna vanrækslu fyrir skömmu. Hundurinn þurfti meðhöndlun dýralæknis eftir vistina en hann hafði verið lokaður inni og hafði ekki komist út til að gera þarfir sínar. Theodór Þórðarson, yfirlögregluþjónn í Borgarnesi, segir rétt að lögreglumaður í hans umdæmi hafi ekki staðist próf sem þjálfari fíkniefnahunds. Hundurinn hafi því verið tekinn í umsjón yfirhundaþjálfara ríkislögreglustjóra. Hann segir kæru ekki hafa verið lagða fram vegna málsins og vill ekki fara nákvæmlega út í hvernig málið hafi verið í heild þar sem það sé ekki í höndum hans umdæmis. Hundurinn, sem er af gerðinni springer spaniel, var illa haldinn og hafði meðal annars fengið sýkingu vegna vanrækslunnar samkvæmt heimildum fréttastofu Stöðvar 2. Hundurinn hafði verið lokaður inni tímunum saman án þess að hugsað hefði verið um að hleypa honum út til að gera þarfir sínar og lá hundurinn því í eigin hlandi og saur. Theodór segir fíkniefnahunda reglulega senda í þjálfun til lögreglumanna og að þjálfunartímanum liðnum þurfi bæði lögreglumaðurinn og hundurinn að taka próf sem bæði hundur og lögreglumaður geti fallið frá. Á hann von á því að hundinum verði komið til lögreglumanns sem hafi staðist slíkt próf en hafi ekki hund.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Fleiri fréttir Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjá meira