Ákæruvaldið snuprað í héraðsdómi 6. apríl 2005 00:01
Héraðsdómur Reykjaness gagnrýnir málatilbúnað ákæruvaldsins í dómi yfir tvítugri konu sem fundin var sek í morgun fyrir þjófnað og gripdeildir á höfuðborgarsvæðinu í fyrra. Konan játaði skýlaust brot sín fyrir dómi. Hún hafði áður hlotið dóma í Héraðsdómi Reykjavíkur og Héraðsdómi Reykjaness 2003 og 2004 og verið dæmd í samanlagt 28 mánaða skilorðsbundið fangelsi, meðal annars fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness frá í morgun er bent á að saksækja skuli mann sem hafi framið fleiri en eitt brot í einu máli eftir því sem við verði komið. Ákæruvaldið eigi að hafa yfirsýn yfir þau mál þar sem ákæra hafi verið gefin út hverju sinni. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að hagsmuna ákærðu hefði ekki verið gætt sem skyldi með því að reka samtímis tvö sakamál á hendur henni fyrir sitthvorum dómstólnum. Ákæra var gefin út í september 2004 í málinu sem dæmt var í í Héraðsdómi Reykjaness en í desember 2004 í máli sem dæmt var í í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í dóminum í morgun sagði að æskilegra hefði verið að sameina málin. Héraðsdómur sagði brot hennar nú smávægileg og með hliðsjón af framangreindu taldi hann ekki ástæðu til að refsa henni fyrir þau.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Sjá meira