E-vítamín slær á tíðaverkina 12. apríl 2005 00:01
E-vítamín getur stytt lengd tíðaverkja og dregið verulega úr þeim samkvæmt nýrri rannsókn sem sagt er frá í tímaritinu British Journal of Obstetrics and Gynaecology. Tíðarverkir, sem þekktir eru undir læknaheitinu dysmenorrhoea, hafa einkum áhrif á unglingsstúlkur og geta truflað daglegt líf þeirra í nokkra daga. Rannsókn þessi var gerð af háskólanum Tarbait Modarres í Íran og voru það tæplega 280 stelpur á aldrinum fimmtán og sautján sem þjáðust af tíðaverkjum sem tóku þátt. Þær sem tóku E-vítamín tvisvar á dag fundu fyrir minni tíðaverkjum og tíðablóðið var einnig minna en vanalega. Þessi lausn fyrir stúlkur sem þjást af tíðaverkjum er afar sniðug því hún er ódýr, henni fylgja engar aukaverkanir og þurfa stúlkurnar ekki að taka inn nein hormón eða verkjalyf samfara E-vítamíni. Sérfræðingar í Bretlandi segja þessa rannsókn marka tímamót og geti hjálpað þúsundum ungra stúlkna.
Heilsa Mest lesið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Nígerskt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira