Erlent

Erfið byrjun nýja formannsins

Nýr formaður danska jafnaðarmannaflokksins mætir á fyrsta degi mótstöðu þingmanna flokksins vegna ummæla sinna um danska eftirlaunakerfið. Sameining er lykilorð nýja formannsins sem segir tímabært að ljúka harðri baráttu fylkinga innan flokksins. Með fimmtíu og þrjú prósent atkvæða í formannskosningu í gærkvöldi varð Helle Thorning-Schmidt fyrsta konan til að gegna stöðu formanns í danska jafnaðarmannflokknum í yfir hundrað ára sögu hans. Í kosningabaráttunni hefur hún verið kölluð „ferski frambjóðandinn“ en hún er þrjátíu og átta ára og var kosin í fyrsta sinn á þing í febrúar síðastliðnum. Á móti henni var svonefndur krónprins flokksins í framboði, Frank Jensen. Hann er 43 ára, var kosinn ungur á þing fyrir átján árum og hefur gegnt tveimur ráðherraembætum fyrir flokkinn. Í ræðu í gærkvöldi hvatti Frank stuðningsmenn sína til að styðja nýjan formann. Í sigurræðu sinni sagði Helle að framundan væru nýir tímar þar sem flokkafylkingar skyldu hætta að berjast. Hún naut stuðnings hægrifylkingar innan flokksins sem kennd er við Poul Nyrup Rasmussen, fyrrverandi formann og forsætisráðherra. Frank var aftur á móti frambjóðandi vinstrifylkingarinnar. Danskir fjölmiðlar segja Helle eiga erfitt starf fyrir höndum. Í leiðara Politiken segir að verkefnið sé yfirþyrmandi en hún virðist ekki hrædd; kannski hafi óþekkti frambjóðandinn verið sá rétti. Berlingske Tidende segir sömu kröfur gerðar til Helle nú og hafi verið gerðar til fráfarandi formanns, Mogens Lykketoft: „Komdu þér í forsætisráðherraembættið eða úr formannsstólnum.“ Og fyrsti dagurinn hefur verið erfiður því yfirlýsing Helle í gærkvöldi, um að vinna með stjórninni að breytingum á danska eftirlaunakerfinu fyrir fólk undir fertugu, hafa mætt mótstöðu hjá nokkrum þingmönnum flokksins sem segja málflutning hennar ekki samræmast stefnu flokksins. Ein af reyndari þingkonum flokksins, Pia Glellerup, tilkynnti strax í gærkvöldi að hún myndi hætta sem formaður þingflokksins eftir sjö ára starf. Hún studdi mótframbjóðandann, Frank Jensen, og segist ekki geta unnið af sömu einurð fyrir Helle. Á stuttum fundi þingflokksins í morgun voru samþykktar tillögur Helle um mannabreytingar í lykilstöðum flokksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×