Erlent

Berlusconi segir af sér

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði fyrir stundu að hann muni segja af sér vegna stjórnarkreppunnar sem komin er upp á Ítalíu. Tveir samstarfsflokkar í stjórn Berlusconis kröfðust þess fyrr í vikunni að hann gerði róttækar breytingar á stjórninni eftir að ríkisstjórnarflokkarnir töpuðu gríðarlegu fylgi í sveitarstjórnarkosningunum sem fram fóru nýlega á Ítalíu. Berlusconi sagði við blaðamenn að hann væri á leið til forseta Ítalíu til að afhenda honum uppsögn sína en bætti við að hann stefndi að myndun nýrrar stjórnar í kjölfarið. 



Fleiri fréttir

Sjá meira


×