Innlent

Magnús inn fyrir Sigurjón

Magnús Þór Hafsteinsson hefur skipt sæti við Sigurjón Þórðarson sem áheyrnarfulltrúi Frjálslynda flokksins í menntamálanefnd Alþingis. Telur flokkurinn að reynsla Magnúsar komi sér vel í þeirri baráttu sem framundan er í nefndinni um framtíðarskipan Ríkisútvarpssins og því var þessi ákvörðun tekin. Magnús starfaði sem kunnugt er lengi vel á fréttastofum útvarps og sjónvarps og hefur þótti standa sig vel í nefnd menntamálaráðherra vegna nýlegrar skýrslu um starfsumhverfi fjölmiðla á Íslandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×