Innlent

Kristinn fyrstur

Kristinn H. Gunnarsson varð fyrstur þingmanna Framsóknarflokksins til að birta opinberlega upplýsingar um eignir og hagsmunatengsl í samræmi við reglur sem þingflokkurinn setti sér í gær. Upplýsingarnar birti Kristinn á vef sínum, kristinn.is. Þar kemur fram að hann eigi engin hlutabréf, stofnsjóðsinneignir eða húsnæði annað en til eigin búsetu. Þá segist hann hvorki stunda atvinnustarfsemi aðra en þingstörf né hafa þegið boðsferðir eða gjafir. Kristinn tiltekur að hann sé formaður stjórnar Tryggingastofnunar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×