Úrræði vegna skilorðs endurskoðuð 26. apríl 2005 00:01
Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir að úrræði vegna afbrotamanna á skilorði verði skoðuð þegar lög um meðferð opinberra mála verða endurskoðuð í haust. Alþingi breytti í fyrra almennum hegningarlögum þannig að skjótvirkari og skilvirkari úrræði fengust gagnvart afbrotamönnum sem brjóta af sér í reynslulausn. Að undanförnu hefur töluvert verið fjallað um ofbeldismenn sem hlotið hafa skilorðsbundna dóma og hafa haldið áfram ofbeldinu en þeim sleppt strax að loknum yfirheyrslum. Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, segir að ekki hafi staðið til að taka á þeim hópi þegar hegningarlögunum sem tóku á brotum í reynslulausn var breytt. Tilgangurinn með frumvarpinu hafi eingöngu verið sá að taka á rofi á almennu skilyrði reynslulausnar. Bjarni segir að skilyrðin sem voru sett inn í hegningarlögin í fyrra mjög þröng. Þau eigi aðeins við þegar þung refsing liggur við og í mjög alvarlegum brotum á reynslulausn og þá aðeins þegar dómstólar hafa fengið viðkomandi mál til meðferðar. Hann segir mál af þessu tagi ekki einföld og minnir á að mannréttindasjónarmið takmarki úrræði. Hann bendir hins vegar á að það standi fyrir dyrum að endurskoða lög um meðferð opinberra mála og hann telji að við þær aðstæður sé full ástæða til að taka úrræði vegna afbrotamanna á skilorði til skoðunar.
Fréttir Innlent Lög og regla Stj.mál Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira