Innlent

Mótmæla breytingum á skipulagi

Um það bil 200 manns mættu á fund í ráðhúsinu í gærkvöldi þar sem verið var að kynna fyrirhugað skipulag á svonefndum Bílanaustsreit við Sigtún og voru flestir fundarmanna óánægðir með þéttleika byggðarinnar og hæð einstakra húsa. Þar er gert ráð fyrir allt að 240 íbúðum og allt að 12 hæða háum húsum. Þá hefur fjöldi íbúa við Skaftahlíð mótmælt fyrirhuguðum stækkunum á húsnæði 365 fjölmiðla við götuna og áætlunum um að flytja alla starfssemi fyrirtækisins þangað.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×