Innlent

Stöðvaður með þýfi í Lækjargötu

Lögreglan í Reykjavík handtók ökumann bifreiðar í nótt eftir að ýmsir hlutir sem talið er að ekki hafi verið fengnir á löglegan hátt fundust í bíl hans. Maðurinn var stöðvaður við hefðbundið eftirlit klukkan hálftvö í Lækjargötu. Hann virtist vera undir áhrifum og í bílnum var ýmislegt, tölvubúnaður og fleira, sem grunur leikur á að sé þýfi. Maðurinn er nú í fangageymslu og verður yfirheyrður síðar auk þess sem reynt verður að komast að uppruna munanna úr bílnum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×