Innlent

Árekstur á gatnamótum

Þrír voru fluttir með sjúkrabíl til skoðunar hjá lækni eftir allharðan árekstur fólksbíls og jeppa við bæinn Tjörn, um 20 kílómetra sunnan við Húsavík, síðdegis á fimmtudag. Tveir voru í hvorum bíl og sluppu að sögn lögreglunnar á Húsavík með hrufl og skrámur. Að sögn lögreglu var mildi að ekki fór verr því fólksbíllinn kastaðist út af veginum og fram af nokkuð háum bakka, en valt ekki. Slysið átti sér stað á gatnamótum þar sem fólksbílnum var ekið í veg fyrir jeppann. Bílarnir eru, að sögn lögreglu, báðir mikið skemmdir, jafnvel ónýtir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×