Innlent

Dómur styttur vegna ónógra sannana

Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vildi sýkna þá bræður.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vildi sýkna þá bræður. MYND/E.Ól
Hæstiréttur stytti í dag fangelsisdóm yfir Rúnari Ben Maitsland og tvíburabróður hans, Davíð Ben Maitsland, vegna ónógra sönnunargagna. Þeim er gefið að sök að hafa smyglað til landsins um 30 kílóum af hassi, sem aldrei var lagt hald á. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vildi sýkna þá bræður.

Í héraðsdómi var Rúnar Ben dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir innflutning á fíkniefnunum. Dómur Hæastaréttar hljóðar upp á fjögur og hálft ár. Þá var fangelsisdómur yfir Davíð Ben styttur úr fjóru og hálfu ári í þrjú. Hvorugur sakborninga var viðstaddur dómsuppkvaðningu en Rúnar Ben afplánar enn fimm ára fangelsisdóm vegna stórs fíkniefnamáls sem dæmt var í árið 2003. Dómurinn í dag er einn angi þess máls og tengist þýsk-íslenskum smyglhring.

Rúnari Ben er gefið að sök að hafa staðið fyrir innflutningi á 27 kílóum af kannabisefnum frá Þýskalandi í tíu ferðum af flugfarþegum um Keflavíkurflugvöll árið 2002 og af farþega með skipi um Seyðisfjarðarhöfn. Í samráði við Rúnar hafi Davíð Ben svo í sjö skipti tekið við 23 kílóum af efnunum. Efnin hafi svo verið seld, en götuverðmæti þeirra hafi verið um 50 milljónir króna. Bræðurnir neituðu sakargiftum og þar sem aldrei var lagt hald á efnin byggist dómurinn á margvíslegum gögnum sem bentu til sektar tvíburabræðranna, t.d. símhlerunum.

Einn dómaranna, Jón Steinar Gunnlaugsson, skilaði sératkvæði í málinu og telur að ákæruvaldið hafi ekki sannað fíkniefnainnflutning bræðranna og ekki heldur að Davíð Ben hafi tekið við efnunum eða að þeir hafi selt þau.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×