Innlent

Guðmundur Árni verður sendiherra

Guðmundur Árni Stefánsson, þingmaður Samfylkingarinnar, verður sendiherra og hættir á Alþingi eftir því sem háttsettar heimildir fréttastofu Bylgjunnar í stjórnkerfinu herma. Talið er að Guðmundur Árni verði sendiherra í Svíþjóð og taki við af Svavari Gestssyni. Hann er sagður flytjast til Danmerkur. Guðmundur Árni hefur ekki viljað tjá sig um málið og svaraði öllum spurningum fréttamanna með því að segja að hann kæmi af fjöllum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×