Innlent

Fisi lent við Litlu kaffistofuna

Lögreglunni á Selfossi barst í gærkvöld tilkynning um að svonefndu fisi, véknúinni svifflugvél, hefði verið lent við Litlu kaffistofuna. Að sögn lögreglu mátti gera ráð fyrir að vélinni hefði verið lent þarna í neyð, en þegar lögregla kom á staðinn var vélin á bak og burt. Virtist sem flugmaðurinn hefði gert sér það að leik að lenda á þessum fjölfarna stað til að taka bensín.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×