Innlent

Rökstuðningur ókominn

Stjórn Dvalarheimilisins Höfða á Akranesi er að ganga frá rökstuðningi fyrir ráðningu Guðjóns Guðmundssonar, fyrrverandi þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í stöðu framkvæmdastjóra Dvalarheimilisins í byrjun mánaðarins. Guðjón var ráðinn með atkvæðum þriggja sjálfstæðismanna í stjórn dvalarheimilsins. Sigríður Gróa Þorvaldsdóttir, formaður stjórnarinnar, vildi ekki tjá sig um málið en ítrekaði að hún byði Guðjón velkominn til starfa. Brynja Þorbjörnsdóttir, sem fékk atkvæði minnihlutans og er ein þeirra sem óskaði eftir rökstuðningi stjórnar, vildi ekki tjá sig frekar að svo stöddu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×