Innlent

Alfreð hafður undir

Sjálfstæðismenn í stjórn Orkuveitunnar lögðu fram bókun á stjórnarfundi fyrirtækisins í gær þar sem þeir lýstu furðu sinni á því að viljayfirlýsing um álver í Helguvík væri ekki á dagskrá fundarins. Í bókuninni segir að það sé augljóst að Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitunnar, hafi verið hafður undir í málinu og að hann njóti ekki trausts innan Vinstri grænna né Samfylkingarinnar innan R-listans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×