Innlent

Ríkisstjórn leysi byggðavanda

Hátt í 140 manns hefur verið sagt upp eða verður sagt upp á næstunni hjá fjórum fyrirtækjum á landsbyggðinni. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, telur ríkisstjórnina þurfa að finna lausnir til að viðhalda byggð í landi. Bílddælingur á Bíldudal hefur sagt upp öllu sínu starfsfólki, um 50 talsins. Skinney Þinganes hefur tilkynnt lokun frystihússins á Reyðarfirði en þar hafa starfað hátt í 20 manns. 32 hefur verið sagt upp hjá Samherja á Stöðvarfirði og Skinnaiðnaður á Akureyri ætlar að segja upp um 40 manns frá og með næstu mánaðarmótum. Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, segir ástandið dapurlegt en bendir á að þetta sé ekki bara þróunin hér á landi. En hver er ástæðan fyrir þessum breytingum? Skúli segir að bæði á Íslandi og annars staðar í Evrópu séu fyrirtæki að stækka. Á Íslandi séu fiskvinnslufyrirtækin að stækka og þeim að fækka og það bitni á minni stoðum. Samkeppnin leiði til þess að sumir staðir verði undir en aðrir stækki og þar verði til fleiri störf. Skúli segir gott dæmi um breytingar vera á Austfjörðum. Hann bendir á að Norðfjörður, Reyðarfjörður og Egilsstaðir sé öflugur byggðarkjarni og fari vaxandi. Nú sé hins vegar ekki lengur að mestu um fisk að ræða eins og áður hefur verið. Þjóðfélagsbreytingarnar séu einfaldlega mjög örar. Einhæfari störfin flytjist annað og fataiðnaðurinn sé til að mynda nánast horfinn úr Evrópu austur til Asíu og þangað hafi skóiðnaðurinn líka farið. Þetta sé sá veruleiki sem við blasi. Skúli segir að auðvitað þurfi menn að hafa áhyggjur af málunum. Ekki sé hægt að sitja hjá aðgerðalaus því eitthvað þurfi að koma í staðinn. Skúli segir þó aðra möguleika vera til staðar, til dæmis sé landið orkuríkt. Hann telur möguleika í aukinni menntun og sérhæfingu í matvælaiðnaði eins og fiski. En er þetta þá kannski ekkert til að hafa áhyggjur af? Skúli segir alltaf dapurlegt þegar fólk missi störfin sín og við því verði að bregðast í þjóðfélaginu. Það sé Starfsgreinasambandsins að taka þátt í umræðum um það en það hafi engar einfaldar lausnir í þeim efnum. Það sé ríkisstjórnarinnar að sjá til þess að halda byggð í landinu með einhverjum aðgerðum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×