Töluverður erill hjá lögreglu 13. október 2005 19:18
Töluverður erill var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt en ölvun var talsverð í miðborginni langt fram eftir morgni. Er það ekki síst rakið til þess að veður var með besta móti auk þess sem skólastarfi er nýlokið. Maður á þrítugsaldri vildi þó komast heim til sín, eða í það minnsta inn í íbúð, í morgunsárið. Á sjöunda tímanum barst lögreglunni tilkynning um að maðurinn væri að klifra utan á fjórðu hæð á húsi í miðbænum. Maðurinn datt niður og fótbrotnaði en er ekki í lífshættu. Hann hafði klifrað út um glugga á sameign og reyndi að koma sér inn í íbúð með þessum hætti. Ökumaður var svo gripinn á hundrað og sextán kílómetra hraða á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar eftir að hafa ekið yfir á rauðu ljósi þar. Maðurinn reyndist í þokkabót vera með útrunnið ökuskírteini og þá leikur grunur á ölvun. Loks voru þrettán teknir vegna brota á fíkniefnalöggjöfinni í Reykjavík í nótt. Lögreglan gerði átak í að fylgjast með eiturlyfjum í miðborginni og leiddi það til þessara handtaka. Flestir voru þó með lítið magn eiturlyfja til eigin nota.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira