Innlent

Eldur og eiturlyf í Grindavík

Eitt fíkniefnamál upp í Grindavík á sjómannadagshátíðinni þar í bæ í nótt. Þá var lögregla og slökkvilið kölluð að heimahúsi í Grindavík vegna reyks sem lagði frá íbúð á jarðhæð. Þar reyndist eldur vera laus á eldavél en húsráðandinn, eldri kona, hafði brugðið sér úr húsi en gleymt að slökkva á eldavélinni. Víkurfréttir greina frá þessu. Í Keflavík var ráðist  á mann í miðbænnum og hann sleginn ítrekað í andlitið. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á sjúkrahúsið í Keflavík þar sem hugað var að sárum hans. Hann er talinn nefbrotinn. Meintur árásarmaður hefur oft komið við sögu lögreglunnar vegna ofbeldismála.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×