Innlent

Hlé á R-listaviðræðum

Viðræðunefnd flokkanna þriggja sem standa að R-listanum ákvað á síðasta fundi sínum á fimmtudag að gera hlé á viðræðum sín á milli. Næsti fundur flokkanna verður haldinn mánudaginn 27. júní. Ákveðið var á fundinum á fimmtudag að hver hinna þriggja flokka myndi vinna sína heimavinnu og í kjölfarið yrði reynt að hraða niðurstöðum um tilhögun framboðsmála þegar flokkarnir kæmu saman aftur eftir hlé.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×