Innlent

Breyting á skipan ráðuneyta

Þjóðhátíðarhöld hófust með hefðbundnum hætti klukkan tíu í morgun þegar forseti borgarstjórnar lagði blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar í Hólavallakirkjugarði. Veðrið var með eindæmum gott svo fjöldi fólks safnaðist snemma saman á Austurvelli til að fylgjast með hátíðardagskránni þar. Anna Kristinsdóttir, formaður þjóðhátíðarnefndar, setti hátíðina og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Halldór Ásgrímsson forsætisráðaherra lögðu blómsveig að minnisvarðanum um Jón Sigurðsson. Forsætisráðherra flutti því næst þjóðhátíðarræðu sína en þær ræður hafa oft vakið athygli í gegnum tíðina. Þetta var fyrsta þjóðhátíðarræða Halldórs sem forsætisráðherra og það var vissulega ýmislegt sem athygli vakti í ávarpinu. Honum varð tíðrætt um hversu niðurdrepandi áhrif á samfélagið neikvæðir og svartsýnir menn hefðu og mátti ef til vill túlka það sem álit hans á umræðu undanfarinna daga um bankasöluna árið 2002 og skýrslu ríkisendurskoðanda um hæfi forsætisráðherra til að taka þátt í því ferli. Ráðherrann sagði mennina jafn ólíka og þeir eru margir. „Þeir vilja tala um mismunandi hluti og leggja misjafna áherslu á það hvað eru aðalatriði og hvað eru aukaatriði. Sumir leggja meiri áherslu á það sem miður hefur farið, það sem ekki var gert, á meðan aðrir vilja draga lærdóm af því sem vel gekk eða gert var,“ sagði Halldór meðal annars í ræðu sinni. En Halldór tilkynnti einnig áætlanir um að endurskoða stjórnsýsluna, gera hana „markvissari“ og „meira í takt við tímann“. Hann sagði síðustu stóru breytinguna á skipan ráðuneyta hafa verið gerða árið 1969 og skipulagið í grundvallaratriðum verið óbreytt síðan. Hann sagði því mikilvægt að hefjast handa við endurskoðun í haust og ljúka henni á tiltölulega stuttum tíma. Halldór kvaðst vilja einfalda ríkisreksturinn og gera hann skilvirkari og markvissari. Öryggisgæsla var með meira móti á Austurvelli, til dæmis var stærra svæði en áður girt af. Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn sagði lögregluna hafa viljað vera við öllu búna en neitaði því að viðbúnaðurinn væri vegna mótmælendanna sem slettu skyri á Nordica-hótelinu fyrir skömmu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×