Innlent

Ahern og Davíð ræddust við

Davíð Oddsson utanríkisráðherra og Dermot Ahern, utanríkisráðherra Írlands og sérlegur fullrúi Kofi Annans, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, hittust að máli í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu síðdegis. Ahern er staddur hér á landi til að ræða við íslensk stjórnvöld um fyrirhugaðar endurbætur á Sameinuðu þjóðunum. Á leiðtogafundi S.þ. í september nk. er ætlunin að ná fram ákveðnum endurbótum á skipulagi og starfsháttum samtakanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×