Innlent

Fjárdráttarmáli vísað til lögreglu

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna gruns um fjárdrátt starfsmanns Reykjavíkurborgar úr heimilissjóði íbúa á einu þeirra heimila sem ætlað er fötluðum. Þar segir að undanfarið hafi farið fram rannsókn af hálfu Reykjavíkurborgar, meðal annars til þess að athuga hvort tilefni væri til að vísa málinu til lögreglu. Á fundi borgarráðs í gær var samþykkt að vísa málinu til lögreglu til frekari rannsóknar. Borgaryfirvöld ákváðu einnig að bæta íbúunum það tjón sem athugun gaf til kynna að þeir hefðu orðið fyrir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×