Innlent

Forsætisráðherrar funda

Forsætisráðherrar Norðurlandanna komu saman í Danmörku í gær til að sitja árlegan sumarfund forsætisráðherranna. Fundurinn fer fram á Falsled Kro á Fjóni og lýkur honum í dag. Meðal umræðuefna eru formennska Dana í Norrænu ráðherranefndinnki, umbætur hjá Sameinuðu þjóðunum og staðan í Evrópusambandinu. Halldór Ásgrímsson, Anders Rasmussen, Göran Persson, Kjell Magne Bondevik og Matti Vanhanen sitja fundinn en hann var haldinn á Íslandi í fyrra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×