Innlent

Fléttulisti valinn í prófkjöri VG

Vinstrihreyfingin grænt framboð í Reykjavík ætlar að boða til prófkjörs 1. október þar sem valið verður fólk í sex efstu sæti á lista, hvort sem hreyfingin býður fram ein eða með Reykjavíkurlistanum. Á félagsfundi VG í gærkvöldi var samþykkt tilhögun prófkjörsins og forvals á framboðslista. Reglurnar kveða á um að karl og kona skipist til skiptis í sæti á lista. "VG hefur nú tekið afstöðu til þess hvernig valdir verða fulltrúar. Þá eru tímamót út af fyrir sig að prófkjörsleið skuli farin, en það hefur ekki verið gert áður, heldur hefur verið raðað á lista," segir Svandís Svavarsdóttir formaður kjördæmisráðs Vinstri grænna í Reykjavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×