Neitar sök og vill ekki tjá sig 28. júní 2005 00:01
Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um fíkniefnasölu og kynferðismök við stúlku undir 14 ára aldri. Maðurinn var handtekinn á miðvikudaginn fyrir viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald á fimmtudag, en það rennur út á morgun. Í dómskjölum kemur fram að lögreglan á Selfossi hafi frá 20. maí hlerað síma mannsins og hafi sú hlerun margsinnis leitt til handtöku fólks með talsvert magn fíkniefna. Sjálfur er maðurinn sagður hafa verið varkár í sölustarfsemi og við afhendingu efna. Við handtöku fundust í fórum mannsins tveir hassmolar og meintur skuldalisti vegna fíkniefnaviðskipta. Alls segist lögregla hafa hlerað um 1.900 símtöl í síma mannsins og fengið upplýsingar um fjölda kaupenda, auk stærri dreifingaraðila. Þá vaknaði grunur um að maðurinn hefði haft samræði við stúlku undir lögaldri og telur lögregla nauðsyn á skýrslutöku í Barnahúsi vegna þess. Maðurinn harðneitar sök og neitar að mestu að tjá sig um sakarefni. Brot hans eru sögð geta varðað allt að 12 ára fangelsi.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Sjá meira