Innlent

Sjálfstæðisflokkur stærstur

Samkvæmt skoðanakönnun Gallup sem gerð var í júní breytist fylgi flokkanna lítið frá því í maí. Fylgi er mest við Sjálfstæðisflokkinn tæplega 38 prósent, sem er það sama og í síðasta mánuði. Fylgi Samfylkingar breytist einnig lítið og mælist 34 prósent. Vinstri grænir bæta örlitlu við sig og mælast með um 16 prósenta fylgi. Framsóknarflokkurinn mælist með tæplega níu prósent. Fylgi Frjálslynda flokksins dalar frá síðustu könnun og mælast þeir nú með naumlega fjögurra prósenta fylgi. Helmingur þjóðarinnar segist styðja ríkisstjórnina. RÚV sagði frá í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×