Innlent

Flytur sig kannski um set

Talið er hugsanlegt að Árni Magnússon félagsmálaráðherra flytji sig um set og leiði lista framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi í næstu alþingiskosningum að því er fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gærkvöldi. Eiginkona Árna fer til náms við viðskiptaháskólann á Bifröst næsta vetur og hafa framámenn Framsóknarflokksins þegar rætt við Árna að því er sagði í fréttinni. Árni staðfesti að hafa heyrt umræðuna en kvaðst ekki ennþá hafa tekið þátt í henni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×