Innlent

Bíðum ekki endalaust

Gestur Gestsson formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður segir að Framsóknarmenn bíði ekki endalaust eftir niðurstöðu viðræðna um framhald samstarfsins innan R-listans. "Þess vegna flýtum við aðalfundi okkar sem haldinn verður næsta föstudagskvöld en ekki í haust," segir Gestur. "Slitni upp úr verðum við að vera tilbúin í kosningabaráttuna." Guðjón Ólafur Jónsson, félagi í Framsóknarfélaginu segir líklegt að framhald verði á samstarfi flokkanna þriggja innan R-listans fyrir borgarstjórnarkosningarnar á næsta ári. "Við klárum þessar viðræður," segir Guðjón.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×