Innlent

Vegaslóðum verði lokað

Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis hefur beint þeim tilmælum til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar að láta loka nú þegar vegaslóðum sunnan og suðvestan vatnsbólanna í Kaldárbotnum vegna hættu á mengunaróhöppum sem umferð vélknúinna ökutækja gæti valdið á vatnsverndarsvæðinu. Bæjarráð hefur sent stjórn Vatnsveitu Hafnarfjarðar erindið til umsagnar. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×