Innlent

Samkynhneigðir öðlist sama rétt

Félagsmálaráðherra sagði í ávarpi á Hinsegin dögum í dag að hann myndi beita sér fyrir því að samkynhneigðir öðluðust fullan rétt á við gagnkynhneigða á sviði hjúskapar og ættleiðinga. Hann segist þó ekki vita hvaða álit aðrir ráðherrar hafi á málinu. „Í dag eiga hommar og lesbíur ekki sömu möguleika og gagnkynhneigð pör að skrá óvígða sambúð hjá Hagstofunni. Samkynhneigð pör í staðfestri samvist eiga ekki rétt á að ættleiða íslensk eða erlend börn til jafns á við gagnkynhneigð hjón, eða einstaklinga. Lesbíur eiga ekki sama rétt og gagnkynhneigðar konur til tæknifrjóvgunar í opinberum sjúkrastofnunum. Að því ógleymdu að samkynhneigt fólk getur ekki óskað eftir því að prestar eða forstöðumenn safnaða gerist vígslumenn þeirra sem hyggjast ganga í staðfesta samvist. Baráttumál homma og lesbía er að öðlast fullan rétt á við gagnkynhneigða til fjölskylduþátttöku. Ég styð það sjónarmið heilshugar og mun halda áfram að beita mér fyrir því, í fullri samvinnu við ykkur,“ sagði Árni Magnússon félagsmálaráðherra í ávarpi sínu á Hinsegin dögum í dag. Það er því ljóst að félagsmálaráðherra vill ganga alla leið til að tryggja samkynhneigðum sömu réttindi og gagnkynhneigðum. Aðspurður hvort kollegar hans í ríkisstjórn séu sammála honum í þessum efnum segir Árni að það hafi ekki verið rætt sérstaklega. Í vetur hafi starfað nefnd þar sem félagsmálaráðuneytið hafi átt fulltrúa og þar hafi þessum sjónarmiðum verið fylgt fram. Hann standi þar með með sjálfum sér og fulltrúa sínum í nefndinni. Þetta sé hans skoðun og hann muni fylgja henni eftir. Árni áréttar að málið hafi ekki verið rætt í ríkisstjórn en hann telji að það sé breið pólitísk samstaða um að jafna réttindi samkynhneigðra og gagnkynhneigðra. Ráðherra vísar á bug staðhæfingum á borð við þá að samkynhneigðir foreldrar geti ekki búið börnum vænleg þroskaskilyrði. Hann segir að rannsóknir sýni þvert á móti að samkynhneigðir standi gagnkynhneigðum síst að baki við barnauppeldi. Menn eigi að horfast í augu við það og stíga skrefið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×