Innlent

Fundur í dag hjá R - flokkunum

Viðræðunefnd flokkanna, sem standa að R-listanum kemur saman til fundar í dag eftir langt hlé, enda liggur ekki enn fyrir hvort flokkarnir ætli að standa að sameiginlegu framboði fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Átján manna forystusveit R-listans hélt sinn fyrsta formlega fund eftir sumarleyfi í gær, þannig að fundurinn í dag er rökrétt framhald af honum. Það gæti ráðist í dag hvort flokkarnir bjóði aftur fram R-lista, eða hvort hver flokkur býður fram sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×